Böðulshátturinn heldur áfram á Úlfarsfelli vegna álitamáls um eignarhald.

Ruddaskapurinn heldur áfram með enn stærri og fleiri vinnuvélum. Og aftur er búið að taka fréttina úr Morgunblaðinu og Landmælingar hafa ekki undan að fela allt raskið. Hvaða hag hafa Landmælingar þarna? eru þeir hluthafar í Og Vodafon? Hef ég ekki séð önnur eins vinnubrögð í öll þessi ár sem ég hef verið í vélavinnu. Eru allir verkstjórar og gröfumenn farnir til Noregs? Ég þekki þó nokkra sem ekki eru farnir enn og ætti að vera hægt að nálgast þá með lítilli fyrirhöfn held ég. Þetta er allt til skammar og bara hreinn ruddaskapur að ganga svona fram, ljúgandi um að það verði bara lagður einn pínulítill kapall.  

50 cal.

 Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær. stækka


Smitun milli þorpa á suðurlandi er alfarið sjálfstæðismönnum að kenna.

Óvarlega hefur verið farið með rifrildisbakteríuna sem herjaði lengi á Hvergerðinga og þá sérstaklega á sjálfstæðismenn þar í bæ.Voru menn lasnir og veikburða í áratugi og fóru flestallar framkvæmdir þorpsins til fjandans, nema trjáklipping á gangstéttum sem náði þá hámarki og var ekki öruggt að ganga þar í dagsljósi. Urðu þorpsbúar því að sinna erindagjörðum sínum á nóttinni eins og vikurnar eftir eftir klórslysið mikla.Slagsmál á nóttinni voru algeng þegar pólitískir andstæðingar mættust í mjólkurbúðinni eða á þvottaplaninu. Faraldurinn er nú gengin yfir í Hveragerði, en smitið hefur borist að Selfossi og logar þar allt í slagsmálum eins og var alltaf eftir böllin í Selfossbíói.Berst leikurinn eftir Austurveginum alveg frá Glóru og niður að Haga þar sem Magnús situr á stól og fylgist með marsmíðinni með kók og prinspóló í sitthvorri hendi og veðjar með Gústa M. um hver vinni slaginn. það góða við þennan óróa er að það verður ekki farið í að virkja Ölfusá í bráð. Svo það er sjálfstæðismönnum að þakka að ekkert verður úr virkjanabröltinu í Þjórsá heldur. Vel gert.

50 cal.


Undan hverju flúðu börnin? Vantaði vasapening?

Og þeir koma frá Danmörku,Svíþjóð og Noregi, en þar er verið að herða eftirlitið við landamærin og svo eru þeir núna betri í að fletta ofan af svikurum, sem eru um 98% af þeim sem koma frá Evrópu og Afríku og þá sérstaklega norður-Afríku löndum eins og Marokko,Alsír og Marokko. Þessir flóttamenn eru ekki að flýja undan neinu sem gerir þá að "ekta" flóttamönnum, heldur eru þetta "atvinnuflóttamenn" sem oftast eru búnir að þræða Norðurlöndin og verið neitað um hæli sem er eðlilegt þar sem þeir eru ekki flóttamenn og sem oftast eru að koma í þriðja eða fjórða skiptið og þá gjarnar með aðstoð og vegabréf frá eiturlyfjasölum eins og uppkomst þegar einn hælisleitandi lenti með flugvél á Gardemoen flugvelli að morni, var handtekinn í Osló seinnipartinn sama dag, seljandi dóp á götuhorni.Þetta vita allir aðilar og þessar hringferðir halda svona áfram endalaust á meðan ekki til kjarkur til stoppa vitleysuna. Þessu vilja Íslendingar endilega vera þáttakendur í þar sem mörg störf eru á bakvið hvern og einn "flóttamann" Þetta vita líka allir aðilar.

50 cal.


Má ekki vinna með krana í sterkum vindi.

Ekki man ég hámarkið, en strákarnir fara venjulega niður þegar hvessir svona eins og lýst er í fréttinni. Vindhviðurnar geta komið ansi brátt að og hef ég lent í að vera með 18 metra langa og 9 metra háa tré sperru uppi í 50 metrum þegar vindkviða snarsnéri sperrunni, en ég var reyndar búinn að reikna út viðbrögðin áður en ég lyfti og var það bara að gefa eftir og snúa bómunni hægt og rólega undan vindi. Þetta var stórt verslunarhús margir strákar allstaðar og fylgdust þeir vel með í hverri hífingu. Það hafa þeir nú gert líka í Gdynia, þar eru vanir strákar að hífa, en þessir kranar hanga vel út fyrir bryggjuna og eru leiðinlega valtir ef eitthvað fer úrskeiðis eins og þarna.

50 cal.


mbl.is Krani hrundi í árekstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

50 sjálfstæðismenn í mótmælum gegn sjálfumsér.

Mótmælin eru ennþá friðsamleg, en gætu breyst snögglega þegar dregið verður í Víkingalottóinu. Hef ég og fjölskyldan öll fjárfest í 1 miða án Jókers sem hefði sett bókhald fjölskyldunnar í afturábak. Merkilegt hvað spilamennska getur haft mikil í þjóðfélaginu eins og við fengum að kenna á þegar bankarnir hrundu.

50 cal.


mbl.is Mótmælt á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á ekki að fjárfesta í virkjunum heldur í litlum og meðalstórum fyrirtækjum.

Meira en 80% velta samfélagsins á að koma frá vinnandi fólki ekki risa fjárfestingu sem gefur mjög takmarkaða vinnu, þaug minni eru alltaf að velta og endurnýja sig. Þetta vita allir sem vit hafa á framleislu og atvinnuskapandi fyrirtækjum.

50 cal.


mbl.is Blekkingin um höftin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

5 miljarðar í mútur frá einræðisbandalaginu. Hver tekur og hver tekur ekki mútur?

Sem sagt múturnar eru komnar inn í landið. Þetta er það sem er verið að hóta okkur með. Og hver borgar svo þessar mútur? En þetta eru skylaboðin,takið mútur,borgið mútur,svindlið,stelið,falsið,svíkið. Þetta er verið að kenna börnum landsins,þetta er það sem er faðir vor þeirra í dag. Hvenar stöndum við upp og hendum þessu pakki út á götu. Ekki bíða þar til einhver fer niður á Austurvöll til að berja potta, sá tími er liðinn og annar kaldari tekin við, þeir sem hreinsa landið, þar á eftir þingið og ráðuneitin, RUV verður útrýmt og tekið niður með gröfu og notað í fyllingu í stækkun Reykjvíkurflugvallar. Klíkufólkið fær að kenna á sömu aðferð og Saddam notaði við sína andstæðinga, húsin rifin og keirð í sömu fyllingu. Og hvenar fara prestar landsins að láta heyra alminnilega í sér, ef ekki getum við líka verið án þeirra. Berja potta er ekki sókn,það er ekki einusinni vörn, níðingsvaldið þolir vel hávaðan í pottum, en annað hljóð sem kemur frá fólki í hemdar hug, hljóð sem kemur frá fólki sem er gjaldþrota, hljóð sem kemur frá fólki sem er heimilislaust, hljóð sem kemur frá fólki sem er atvinnulaust og búið að fá nóg af svikum. Það er hljóð sem þeir hræðast mest af öllu!.

50 cal.


Markaðurinn hættur að stjórna verðmætasköpun, það er græðgin sem stjórnar.

Það er ekki lengur verðmætasköpunin sem stjórnar fjármálum, heldur skyndigróðafíklar eins og voru fyrir hrun. Þetta skánaði ekki einu sinni, bara versnaði og ríkið og lífeyrissjóðir taka þátt í hrörnuninni. Eftir nokkur ár förum við aftur á hausinn og eftir eitt ár ef farið verður inn í einræðissambandið. Þetta sagði mér  maður sem lá úti í grasinu á Austurvelli.

50 cal.


Af hverju eru sömu aðilar með bæði bensín og gas?

Er þetta ekki ruddaskapur og frekja? Auðvitað ættu gjörsamlega óháðir aðilar að selja gasið, til þess er nú leikurinn gerður, til að fá samkeppni við bensínið, eða er það ekki? Getur enginn innlendur aðili gert þetta sómasamlega er kominn tími á samkeppni frá útlöndum. Annars er þetta bara della að vera að breyta bílum fyrir 900.000,- bara fyrir gas þegar hægt er að keyra á diesel með Militec-1 í olíunni og 1 bolla á ári í tankinn og þú keyrir bæði ódírara og alveg jafn hreint.

50 cal.


mbl.is Metanbílaeigendur í hremmingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já hann er mikið skáld hann Núbó Kínverji, Scandinavía mun fyllast af Kínverjum!

Ef maðurinn hefði sagt satt frá hver hann væri þegar í byrjun hefði hann sloppið við öll þessi vandræði, honum hefði bara verið hent út með hinu ruslinu. Og svo endurtekur hann það sem okkur grunaði , en hann neitaði og það var þetta með að allt fylltist af Núbóum í Scaninavíu ef hann fengi að "fjárfesta" á Íslandi. Ef ekki efasemdarmenn opna augun núna er þeir blindir eða það hefur verið borið á þá peninga. Engin önnur þjóð lætur draga sig á asnaeyrunum eins og gert hefur verið og ekki farið út í horn og skammast sín. Kínverjar mega alveg "missa" andlitið í þessu máli og þeir hafa af mörgum andlitum að taka.

50 cal


mbl.is Kínverjar fjárfesti í Skandinavíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að koma sér í skilning um hlutina Pétur

Þegar þulur í Útvarpi Sögu staglast á að ekki má dæma alla Kínversku þjóðina eftir einhverjum fáum. Röksemdar della. Hinir Kínverjarnir eru "person non grada" í sínu landi. Þar er Elíta eins og hér, þar eru þeir ríku sem ráða, Það er eins og hér. Þar er kommúnistisk kapítalísk einræði  eins og hér. Venjulegir (þjóðin) Kínverjar hafa ekki hugmynd um að Ísland sé til, en það vita Sorbonne gengnir elítumenn, starfandi í Áróðursmálaráðuneitinu óskup vel.Gatið í CW hjá þessum Núbóum sést ansi vel ef maður vill sjá það. En sumt fólk vill ekki sjá og skríður á hnjánum í blindu eftir einhverju sem allir hinir sjá að er alger della, nýju fötin keisarans. Norðmenn höfnuðu Kínverjum (elítuKína) mörg Evrópulönd hafa gert það sama af sömu ástæðum og svo hafa þeir líka almennilega leyniþjónustu sem gera vinnuna sína og sjá í gegnum þetta eins og ekkert.  Afríku löndin hafa ekki sama grundvöll og við að byggja skoðanir og stefnu á eins og við vitum. Ítalir eru í sárum eftir að þeir slepptu Kínverjum inn í fataiðnað "Made in Italia" og það hefur lítið borið á sjónvarpi eða skrifum um það hneyksli.

50 cal.


Er það satt? Getur það bara verið??

Sögur eru komnar í gang um að byggingavöruverslanir úti á landi séu að kaupa úr búðinni hjá Bauhaus til að selja í sínum verslunum, það sé mun betra verð frá Bauhaus en birgjar í bænum bjóða! Ef svo er, hvað er þá álagningin mikil í þeim íslensku?

50 cal.


mbl.is Keyptu fyrir milljarð í Bauhaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru íslensku verkamennirnir? Hvaða verktaki er þetta? Borga þeir skatt? Ég er að rannsaka þetta.

Og held áfram með það þar til íslenskir verkamenn hafa fyrirgang til ALLRA VERKEFNA  'A LANDINU, ALLTAF!!!. Ég stofna verkalíðsfélög fyrir íslenska verka ,tækjamenn og bílstjóra!!OG kaupið verður líka íslenskt og töluð íslenska í allri vinnu á íslandi.Ég hef bara núna 6 félög á lausu sem gata farið afstað nú þegar. Og ekki  veitir af núna þegar í mörg horn er að líta. Farandverkamenn EIGA AÐ FARA þegar vinnan er búin í landinu Það er alþjóðasamningur um það! Þannig eru lög okkar á íslandi núna og hafa alltaf verið! Hverjir viljka vera með? Það er bara að skrá sig.

50 cal.


mbl.is Ókunnugir menn grófu í garðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já já það átti að tengja í síðasta mánuði sagði í bréfi frá Símanum. Ekkert komið.

Og verður ekki. Þetta er þekt brella til hað halda áskriftum aðeins lengur, en við ætlum að safna undirskriftum og sjá hvaða tilboð berast.

50 cal.


mbl.is Ljósnet til að mæta kröfum heimila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hella út mjólkinni strákar! Það hefst að fá hækkun tiltölulega fljótt.

Þetta verður að gerast núna og ekki þegar komið er að því að kjósa um aðild að einraæðinu. Þett vitið þið og skellið þessu í framkvæmd. Við getum skroppið til ykkar ef börnum vantar mjólkursopa. Drífa sig!!!!

50 cal.


mbl.is Segir kjarabaráttu bænda löngu horfna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsendan er peningar, miljarðar...

Í dag gengur allt út á peninga og lygar og að geta lært að brjóta eins mörg lög og mögulegt er á sem stiðstum tíma. Það eru allavega skilaboðin sem valdstjórnin sendir út í samfélagið (klíkufélagið allavega). En stór hluti þeirra sem flytja hingað virðast ekki eiga í neinum vandræðum með það og á það við á öllum norðurlöndunum. Af er það sem áður var þegar farið var út til að vinna og koma svo heim, en núna er unnið í 3 vikur og svo hangið á bótum og afbrotum. Þetta er svona í dag og svona verður þetta þangað til fólkið tekur að sér að reka sitt þjóðfélag sjáft.

50 cal.


mbl.is Íslenskan ein ekki lykill að samfélaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað á ekki að fara að lögum

Annað væri óhugsandi og í raun óhugnalegt. Það er bara ekki hægt að fara eftir sumum lögum og öðrum ekki. Ef brjóta á allar reglur og lög á annað borð, verður að vera einhver regla á því nema að það verði að brjóta hana líka. Hvet ég fólk og fyrirtæki til að fara eftir nýju reglunum og brjóta öll lög og þá helst fyrir austan og norðan á virkum dögum, en fyrir sunnan og vestan um helgar.

50 cal.


mbl.is Segja ráðherra ekki fara að lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landshlutar í sókn, ekki á sjó og ekki á landi, kannski á lofti.......

Eðlilegasta skíringin er sú að engin veit neitt eins og venjulega. Kannski er Núbó að koma eða jólasveinninn eða UFO? En til að þóknast kínverskum kommúnistum er þessi ríkisstjórn tilbúin að brjóta öll þaug lög sem gætu heftað komu hanns til landsins. Af hverju stoppuðu norðmenn  "norska Núbóan". Er Jóhanna búin að kynna sér sögu "ítölska Núbóans" hvernig hann rústaði einhverjum besta gjæðastimpli heims? Ekki það? Jóhanna gæti "gúglað" hann! Svona til að gera eitthvað af viti.........

50 cal


mbl.is Ríkisstjórnarfundur á Egilsstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrúgvæíngar.Sílenungar,Malæsíjúngar og MBL!

Það verður nú að fara að kenna MBL þetta með nöfn á löndum og þá gjarnan löndum langt í burtu sem fara út í skurð hjá setjurunum. Er þetta ekki þeim "gömlu" að kenna, heldur er blaðið sett niður í tölvum, held ég. Hvað um það þá er ljótt að fara svona með falleg nöfn á stöðum úti í heimi og hreinlega móðgandi stundum. Ég hef mynnst á þetta áður en það bara versnaði eins og fjandinn hafi þá hlaupið í setjarana. Sjálfur er ég í daglegri baráttu við réttskriftina eftir nær 40 ár erlendis. Kemur fyrir að ég skipti um tungumál í miðju samtali og álitinn vera fábjáni þessvegna. En þetta með að "Íslenska" allt á milli himins og jarðar án þess að líta til fegurðar gengur bara ekki lengur!.

50 cal.


Þar gerist ekkert heldur!

Frúkkan og ég skruppum út í hraun eftir kvöldmat til að skoða framtíða skotsvæði  fyrir ALLAR gerðir og stærðir af skotvopnum. Svæðið var orðið þurrt og það eyrðist í einum eða kannski tveim Lóum. Þarna eins og allstaðar við höfuðborgina er stolnum bílum slátrað af Pólit klúbbnum og liggja dekk og plasthlutið úti um allt. Og búið var að keyra upp í næstum allar fjallshlíðar á þessum litlu 5,8 km. sem við skoðuðum. Auðvitað varð myndavélin rafmagnslaus eftir bara 8 myndir og þarf að endurtaka ferðina snarlega aftur  næstu daga.Þær eiga að fara í plöggin sem og annað gott. Ég þarf að hafa með í jeppanum, svona hæfilega langa stunguskóflu til að stinga niður ROFABÖRÐIN sem eru allstaðar sýnileg á þessu litla svæði og virðist ekki vera nokkurt eftirlit eða afskipti af þessu landfoki lengur eins og var svo vinsælt hér áður fyrr. Eins metir þykk mold hverfur eins og ekkert, marga metra á ári hverju og er sumstaðar bara 20-30fm eftir af gróðri. Það verður gróðurlaust svæði þarna ef ég tek  ekki að mér þetta verkefni í sumar og sting niður börðin og skrái allan dalinn og sendi inn til viðeigandi aðila.45 mín vel varið á góðu sunnudagskvöldi vorið 2012.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband