Af hverju ertu á Íslandi Ulker Gasavova?

Sem gestur í landinu verður þú að haga þér eftir okkar reglum. Ef ekki, er bara að drífa sig út til síns sælulands  þins og koma ekki aftur. Með hvaða rétti ræðst þú á Pál Óskar, einn af hrenhjörtuðustu sálum í okkar þjóðfélagi. Ég ætla að byðja Pál Óskar fyrirgefningar á þinna vegna það sem þú ert gestur hér um stundarsakir og varla hefur tíma til þess sjálf.

50 cal.


mbl.is Öskureið út í Pál Óskar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tryggvi Marteinsson

Mega gestir og eða íbúar hafa þá skoðun sem þeim sýnist Eyjólfur ? Er speki landans sem er á framfærslu alþjóðasamfélagsins slík að aðrir megi ekki hafa skoðun? Þessi kona má hafa allar skoðanir í heimi

Tryggvi Marteinsson, 12.2.2012 kl. 12:30

2 Smámynd: Ulker Gasanova

Sæll Eyjolfur! Hvernig í andskotanum telst ég sem gestur hér á landi ef ég er með íslenskan ríkisborgararétt ????
Svo er það Páll óskar sem ætti að biðjast afsökunar á öllu ruglinu og þvæluni sem hann hefur sagt þjóðinni núna síðustu daga. Það mun ég aldrei gera þar sem ég hef ekkert sagt rangt!

Ulker Gasanova, 12.2.2012 kl. 13:26

3 Smámynd: Óskar Helgi Helgason

Sæll Eyjólfur; líka sem og, aðrir gestir, þínir !

Eyjólfur !

Ég tek heilshugar undir; með þeim Tryggva og Ulker, og minni þig á, að á Þjóflutningatímanum (á 4. - 6. öldum), nutu forfeður okkar - sem formæður, gistivináttu Azera, og annarra nágranna þjóða þeirra, austur þar.

Mér finnst; sem nafna minn; Hjálmtýsson, hafi sett ofan, við það að kynna þessa keppni, í Hörpu skriflinu, húskumbalda, sem reistur var fyrir blóðpeninga, íslenzkrar Alþýðu.

Ef; einhvern ætti að biðja afsökunar, í þessum málum öllum, er það Ulker Gasanova, og þjóð hennar, öll, Eyjólfur minn.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi / 

Óskar Helgi Helgason, 12.2.2012 kl. 14:36

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það getur verið, að við rangtúlkum eða oftúlkum fréttir frá Aserbadídsjan,  þau sem þar búa eru ekki beint eins og bræður okkar og systur Færeyingar.

En ef manréttindi eru bara að þokast til betri vegar í Aserbadísjan, þá er ljóst að þar er ekki allt sem skyldi.  Hvenær hófst sú þokun? Og hvenær skyldi sú þokun eiga að ná endamarki ? Manréttindi hafa almennt ekki verið hátt á blaði þarna austur frá og þau eru svo sem ekkert alfullkomin hjá okkur heldur. 

En hann Páll Óskar má segja það sem hann telur vera réttast án þess að einhver kona missi sig þess vegna.  En ef þessi ágæta kona andaði nú í smástund með nefinu og legði fram staðreyndir til að sanna málsit þá er ég vissum að Páll Óskar yrði fyrsti maðurinn til að biðjast afsökunar. 

Enn að rífa hár sitt og skegg og verða æf er ekki til vitnis um jafnvægi.         

Hrólfur Þ Hraundal, 12.2.2012 kl. 14:40

5 Smámynd: Óskar Helgi Helgason

Komið þið sæl; á ný !

Hrólfur vélfræðingur !

Vil samt; minna þig á, sem aðra, að ég vissi ekki, hvert minn ágæti nafni; Hjálmtýsson ætlaði, þegar hin kostulegu borgaryfirvöld Reykvíkinga, þóktust ætla að breyta um / eða loka, hinu kunna samkunduhúsi NASA, við Austurvöll, þar syðra í Haust, leið.

Nema; hvað örskömmu síðar, er nafni (Páll Óskar) stokkinn upp á vagn gróðahyggju og forheimskunar, sem stendur fyrir rekstri Hörpu kumb aldans, og þykist vera dús, við þau Steinunni Birnu og Pétur Eiríksson, sem fyrir Lúxusnum fara, á Austurbakka Reykjavíkurhafnar.

Er ekki; eitthvað brogað, við þau snöggu sinnaskipti, hins ágæta nafna míns, Hrólfur ?

Með; ekki síðri kveðjum, en hinum fyrri /

Óskar Helgi Helgason, 12.2.2012 kl. 14:50

6 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Ekki hef ég náð í Pál Óskar, en ég hef hann ennþá sem óvenjulega góða og óspilta sál í ringulreið dagsins. Má vera að ég traðki á tær einhverra, en ég stend við það sem ég skrifa hér á þessa bloggsíðu og ekki hef ég bannað síður en svo, nokkrum að hafa skoðanir á öllu mögulegu. það er eldfimt þjóðfélagið í dag og á eftir að versna til muna. Svo það eiga eftir að koma margar stórar slettur á bloggsíður landsmanna á næstu vikum og kannski líka mánuðum svo það er bara að hald sér fast!!

Eyjólfur Jónsson, 12.2.2012 kl. 14:59

7 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Ekki hef ég andað í gegnum nefið síðustu 3 klukkutímana þar sem verið er að hoppa á skíðum í Willingen í Þýskalandi og vann Norðmaður og sigldi þar með í toppinn samanlagt. Ég er búinn að vera þarna úti mest alla æfina, en er ennþá Íslendingur í hjartanu þó það sé ansi erfitt þessa dagana. Pál Óskar sá ég fyrst í Pítunni þar sem hann sat einn úti í horni og hélt skammar ræðu yfir Stöð 2 í þó nokkuð langan tíma. Þarna opnaði strákurinn sál sína fyrir okkur hinum gestum Pítunnar og má sega að þá hafi augu mín opnast aðein. Konan mín hún Svanhildur var búin að vinna með honum í gæslunni í Kringlunni svo hún þekkti hann og bar orð hans vel. Og þá er mikið sagt!!!

Eyjólfur Jónsson, 12.2.2012 kl. 15:53

8 Smámynd: Óskar Helgi Helgason

Komið þið sæl; á ný !

Eyjólfur !

Ekki hvarflar að mér; að draga ýmsa mannkosti nafna (Páls Óskars) í efa, að nokkru leyti, fjarri því.

En; hann virðist eiga það til, blessaður drengurinn - líkt; og flest okkar hinna, að geta verið svolítið fljótfær, stundum.

Ekki lakari kveðjur - en hinar, fyrri /

Óskar Helgi Helgason, 12.2.2012 kl. 16:17

9 Smámynd: Sandy

Páll Óskar má hafa alla þá skoðun á mannréttindabrotum í heiminum sem hann vill. En meira mundi mér hlýna um hjartaræturnar ef hann liti fyrst til Íslands, og gerðist málsvari þess fjölda fólks sem verið er að bera út af sínum heimilum hér á landi, því það er bara ósannindi að það sé allt óráðsíufólk.

Sandy, 13.2.2012 kl. 08:08

10 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Sæl Sandy og velkomin í bloggið. Ég held sjálfur að það séu margir aðrir einmitt í því að aðstoða fólk sem er verið eða búið að bera út sem eiginlega ætti ekki að gerast og er bannað með lögum. Sandy, farðu inn á "nyframtid.is" og lestu og lærðu. Og hann Páll Óskar hefur stórt og opið hjarta, en við eigum að fara varlega með þessa listamenn okkar það er alltof algengt að þeim sé þvælt inn í allskonar pólitískan áróður. Páll Óskar er sennilega óspiltast náungi sem ég hef hitt og hjálpum honum að vera það áfram.

Eyjólfur Jónsson, 13.2.2012 kl. 11:26

11 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Og Sandy, ég spáði mikið í hvað væri eiginlega á myndinni á bloggsíðunni þinni og fór að skoða! Og var það ekki kisi á hlaupum. Við erum núna með 2 og 2 smá hunda og lífið er dásamlegt!

Eyjólfur Jónsson, 13.2.2012 kl. 11:31

12 Smámynd: Óskar Steinn Ómarsson

Af hverju dregurðu þá ályktun að Ulker er "gestur" í landinu, þegar hún er í raun ríkisborgari?

Og ert þú á þeirri skoðun að "gestir" í landinu ættu ekki að tjá sig um mál líðandi stundar? Eru það bara Íslendingar sem mega tjá sig hér á landi?

Óskar Steinn Ómarsson, 13.2.2012 kl. 18:26

13 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Sæll Óskar Steinn, ég get ómöguleg vtað að fólk með svo útlensk nöfn séu með íslenskt vegabréf, ekki séns!Spurning og staðhæfing þín fellur um sjálft sig. Allir vita að ísendingar heita ekki svona nöfnum. Skírðu út fyrir mér hvernig ég átti að vita að hún væri ríkisborgari hér. Hinu er ég þegar búinn að svara. Ég tel mig vera ansi sjóaðan í umgegni með útandinum eftir nærri 40 á þarna úti m.a.25 ár í Noregi.

Eyjólfur Jónsson, 14.2.2012 kl. 00:02

14 Smámynd: Bróðir pabba þíns

Ef þú hefðir lesið fréttina þá kom fram að hún flutti hingað fyrir 11 árum. Þú virðist hins vegar vera það mikið fífl að ég er í raun hissa á því að þú kunnir að lesa.

Bróðir pabba þíns, 14.2.2012 kl. 04:23

15 Smámynd: Óskar Steinn Ómarsson

Svo þú gerir einfaldlega ráð fyrir því, af því að hún ber útlenskt nafn, að hún sé "gestur"? Einfaldlega vegna þess að ríkisborgararétturinn er ekki nefndur í fréttinni.

Þá spyr ég hvort þeir sem beri útlensk nöfn eigi ekki heldur að fá að njóta vafans, og vera Íslendingar þangað til annað kemur á daginn, en ekki öfugt.

Óskar Steinn Ómarsson, 14.2.2012 kl. 06:06

16 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Svar til nafnlaust fífl: Ég flutti til Svíþjóðar fyrir 48 árum síðan, en það gerir mig ekki að Svía. Óskar Steinn: spurðu Hagstofuna til vegar.

Eyjólfur Jónsson, 14.2.2012 kl. 18:30

17 Smámynd: Ulker Gasanova

Eyjólfur það skiptir bara engu máli. Þá skaltu ekki koma með svona komment þar sem ég á ekkert að vera að tjá mig um þetta. Hafðir ekki einu sinni hugmynd um að ég er nú orðin íslendingur!
Og hvort sem ég er það eða ekki þá má/mun og ætla ég að tjá mig um hvað sem er eins og ég vil!!

Ulker Gasanova, 16.2.2012 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband